Alþjóðadagur psoriasis – 29. október
Við hjá SPOEX bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Alþjóðadag psoriasis.
Markmiðið er að vekja athygli á psoriasis, auka fræðslu og opna umræðuna um áhrif sjúkdómsins á daglegt líf. Þema ársins er #LookBeyondMySkin og minnir á að psoriasis er meira en það sem sést utan á húðinni. ![]()
Dagsetning: 29. október
Tími: 17:00–19:00
Staðsetning: ÖBÍ – Mannréttindahúsið, Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Vörukynningar frá Bláa Lóninu, Decubal, La Roche Posay og fleiri.
Fyrirlestrar og að þeim loknum verður opið fyrir spurningar og umræður
Kaffi og með því verður í boði
Dávur í Dali sálfræðingur og stofnandi UngSpoex ræðir um þrálát líkamleg einkenni
Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir húð- og kynsjúkdómalæknir verður með fyrirlestur um sólarvarnir
Ingvar Ágúst Ingvarsson forseti IFPA og stjórnarmeðlimur Spoex kynnir það sem er nýtt af ráðstefnum húðlækna
Við vonumst til að sjá sem flest!
Öll eru hjartanlega velkomin.
